Páfagaukar (eftir Ástu Þorbjörgu)

Í tölvutímanum í síðustu viku var ég að gera verkefni í Powerpoint. En því miður er ekki hægt að setja það inn á heimasíðuna. Þannig að ég ætla bara að skrifa um það og hafa myndir með. Ég fjallaði um það í verkefninu hvað þeir borða og hvar þeir verpa

Páfagaukar borða að mestu leiti fræ og ávexti. Líka grænmeti en það fer allt eftir fuglinum.

Þeir verpa í moldarveggjum, kókoshnetutrjám og í trjákrónum.

Páfagaukar eru mjög vinsælir sem gæludýr.  Kveðja Ásta! senegalparrot10.jpg images.jpg

 

jijijijijijijijijijijijijijijijijijijiji.jpg VARÚÐ! Arnpáfar eru með tveggja tonna bitkraft! (Þessir rauðu) two-umbrealla-cockatoos.jpg three_jenday_conure_babys.jpg


Ásta og Kári læra rim og remser

Ormene har ingen ojne,
ingen ben og intet har.
Ormene er gangske nogne
og ma kravle, nor de gar.

Ormene kan ikke tale.
Ormene ha ingen tænder.
Ormene er kun en hale,
der er ens i begge ender!

Ath hér vantar inn dönsku stafina sem við getum ekki sett inn.

11_jan2011_003.jpg Kári og Ásta í dönskutíma. 


Jólaballið

litlu_j_lin_14_12_2011_015.jpg

Litlu jólin voru haldin hátíðleg í skólanum okkar þann 14.desember. Við borðuðum rosalega gott hangikjöt með uppstúf og ora grænum baunum og kartöflum í hádeginu. Svo fengu allir að velja sér pakka undir trénu.

Síðan var haldin jólaskemmtun þar sem foreldrar og vinir mættu og  heppnaðist hún bara vel. Eftir það var jólaball  og allir dönsuðu og sungu. En þá kom jólasveinninn Kjötkrókur og gaf öllum sem vildu manantrínur. Hann var að koma frá Ekkistaddur (Egilstöðum).

Við í Finnbogastaðaskóla viljum óska ykkur öllum gleðilegra jóla og frábærs nýs árs.

Einnig viljum við þakka henni Sigurrós Söndru Bergvinsdóttir fyrir eitt og hálft æðislegt ár hér í skólanum.

Takk fyrir gott ár!!!

Kv Júlíana Lind, Ásta Þorbjörg, Kári, Þórey, Elísa Ösp, Hrefna, Ingvar og Rósa. litlu_j_lin_14_12_2011_017.jpg


Dularfulla bréfið!!

Um  daginn var ég að lesa bók sem heitir Fjallabensi og í miðri bókinni fann ég bréf sem var skrifað fyrir 15 árum. Bréfið var sent af Hilmari Steingrímsyni til sonar hans. Inn í bókina var stimplað nafnið Halldór P. Hilmarson og gerði ég ráð fyrir að hann hefði átt bókina sem hefði á einhvern undarlegan hátt lent í bókasafninu okkar!

Svo það var leitað að Halldóri á netinu og fundið símanúmer. Ég reyndi að hringja í það en það var aldrei svarað þangað til einn daginn að þá svarðaði maður sem sagðist heita Halldór P. Hilmarson og að Steingrímur væri pabbi hans. Við sendum honum bréfið og hann var mjög glaður.

Það er gott að bréfið komst til skila og við skilum kærri kveðju til Halldórs. 17_11_2011_019.jpg

Júlíana Lind 17_11_2011_020.jpg


Jóla, jólaföndur

jolafondur_2011_001.jpg Í gær var haldið jólaföndur hérna í skólanum. Verkefnin sem voru í boði voru: Handajólasveinn, punktamálning og fugl til þess að hengja á jólatréð. Svo voru auðvitað myndir fyrir litlu krakkana að lita. Okkur fannst æðislega gaman í gær. Við vorum búin að bíða spennt eftir þessum degi.

 Ásta Þorbjörg, Júlíana Lind, Kári og Þórey.


Nýjar bækur og myndlistasýning í Finnbogastaðaskóla á miðvikudag!

Nýverið barst bókasending frá bókasafninu á Grundarfirði með bæði gömlum og nýrri bókum. Af því tilefni langar okkur að bjóða sveitunga okkar velkomna til okkar í skólann að kíkja á þessar bækur sem og aðrar bækur á safninu miðvikudaginn 30. nóvember frá 13:00-14:00.
Með þessu viljum við hvetja ykkur öll til að nota bókasafnið meira.
Lítil myndlistarsýning verður uppi í tilefni dagsins þar sem hægt verður að skoða eftirprentanir af myndum þekktra íslenskra myndlistarmanna.
Kær kveðja
nemendur og starfsfólk Finnbogastaðaskóla

Aníta Mjöll í forskóla

Hún Aníta Mjöll er búin að vera hjá okkur í forskóla. Það var mjög skemmtilegt að hafa hana hjá okkur og lífgaði það mikið upp á skólabraginn. Hér er mynd af henni og okkur í heimilisfræði þar sem við bökuðum skinkuhorn og elduðum grjónagraut með. 17.11.2011 006   17.11.2011 003 17.11.2011 002 17.11.2011 008


Ljóðin heim

Í gær var Dagur íslenskrar tungu. Af því tilefni færðum við nokkrum íbúum ljóð og upplestur heim á bæ. Fólk var við ýmsa iðju þegar okkur bar að garði t.d. að rýja fé, búa til tólg, vinna á bryggjunni ofl. Allir kunnu vel að meta upplesturinn og ljóðin og þetta var mjög ánægjuleg leið til að minna fólk á þennan merkilega dag. Myndirnar tala sínu máli.

 Kveðja Kári      

                     17_11_2011_022.jpg 17_11_2011_028.jpg 17_11_2011_030.jpg 17_11_2011_026.jpg

17_11_2011_017.jpg


Óveður eftir Kára

Óveður!! 

Einu sinni sem oftar gekk smaladrengurinn Guðmundur með fé föður síns og hundin sinn Snata. Einn daginn fóru kindurnar að vera órólegar en Guðmundur tamdi þær og þær urðu spakari. Nokkru seinna brast á blindhríð það kom stormur og snjóbylur þeir félagar voru skíthræddir um að nú myndu þeir missa féð og það var líka það sem þeir gerðu. Þeir sáu ljós og heyrðu hljóð sem var líkara gráti. Þeir gengu að ljósinu og fundu helli og þar inni var stúlka sem grét af öllum lífs og sálar kröftum.

Guðmundur gekk inn og spyr: hvað gengur að þér?

Hún svarar: Ég var send út í morgun að ná í lambakjöt úr hópnum þarna upp frá.

Guðmundur setti upp hissu svip.

Stelpan: Þegar ég kom aftur voru allir farnir.

Guðmundur: Viltu ekki fá úlpuna mína þér er svo kalt?

Stelpan: Ég datt í drullupoll á leiðinni og ég er ógeðslega skítug.

Guðmundur: Pu, kvenmenn tautaði hann en hundurinn gelti.

Stelpan : Heyrðu viltu ekki vera hjá mér meðan bylurinn er?

Guðmundur: Jú jú, Smile er ekki pláss fyrir hundinn annars. 

Stelpan: Það ætti að vera pláss. Þar sem að Tryggur er ekki með mér, heldur fór hann með foreldrum mínum. 

En Guðmundur fór aldrei og lifðu þau í hellinum á lambakjöti til æviloka. 

graphiccartoonstormcloud.gif

Kári Ingvarsson. 


Vinátta

Góður vinur er,  

hjálpsamur og góður.

Hann mig alltaf sér,

hlaupandi og móður.

þórey

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband