Skólasetning 25. ágúst

Skólasetning Finnbogastaðaskóla fyrir skólaárið 2014-2015 verður mánudaginn 25 . ágúst klukkan 14:00. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 26. ágúst.

Við bjóðum ykkur öll velkomin til starfa og hlökkum til samstarfsins í vetur.

 

       Fyrir hönd starfsfólks Finnbogastaðaskóla

       Elísa Ösp Valgeirsdóttir

 

 


Sundkennsla

Fríða sundkennari kom og hélt fyrir okkur sundnámskeið í vor. Það tókst ótrúlega vel og við lærðum heilmargt nýtt og bættum okkur mikið. Hér kemur ein mynd af okkur 

12.06.2014 014

 


Skólaslit

Í dag föstudaginn 16. maí verður Finnbogastaðaskóla slitið. Við þökkum ykkur samfylgdina í vetur og hlökkum til næsta hausts þegar við tökum upp þráðinn að nýju. 

Gleðilegt sumar!

 

16.05.2014 096

Útivistardagur

Við skelltum okkur í gönguferð síðasta skóladaginn á þessu skólaári. Við gengum frá Gjögri meðfram ströndinni og út á Strönd þar sem Gjögurviti er staðsettur. Þar er margt fallegt að sjá t.d. mikið af fallegum hvítum steinum og svo er landslagið virkilega fallegt. Við grilluðum okkur pylsur og höfðum það mjög skemmtilegt.

skóli 062

 

skóli 091skóli 087skóli 072skóli 070skóli 065

Vorhátíð 2014

Við héldum vorhátíðina okkar hátíðlega í gær. Þar var gleðin við völd og skemmtu gestir sér konunglega við að hlýða á söng, horfa á dans og leikþáttinn Framhjágönguna. Vel var mætt af íbúum hreppsins og gestum þeirra og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir enda kominn sauðburður á flestum bæjum svo ekki er hlaupið að því að komast að heiman. Hér koma nokkrar myndir frá gærdeginum. Njótið vel Wink

vorhátídv1v3

 

v11v9v7v8v6v2

Við undirbúum vorhátíð

Nú er allt vitlaust að gera hjá okkur í að undirbúa vorhátíðina okkar. Við ætlum að gera okkur og sveitungum okkar glaðan dag  föstudaginn 9. maí og skella upp vorhátíð. þar verður góður matur á boðstólnum og svo erum við í óðaönn að undirbúa skemmtiatriði og æfa lög sem við munum bjóða gestum okkar að njóta Whistling

SKÓLAFERÐALAGIÐ

Jæja þá erum við komin heim (allavega sumir) úr skólaferðalaginu okkar. Það tókst alveg svakalega vel og hér fyrir neðan getið þið lesið um það sem við höfðum fyrir stafni:

Fimmtudagur 3. apríl: Við fórum með flugi frá Gjögri og lentum í Reykjavík um 14:30. Við tókum leigubíl í íbúð í Sólheimum sem við höfðum tekið á leigu og skildum dótið eftir þar. Þaðan fórum við í keilu í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og svo í bíó á myndina Ævintýri Hr. Píbodys og Sérmanns. Um kvöldið pöntuðum við pizzu frá Eldsmiðjunni og höfðum það notalegt. Ásta skrapp aðeins í afmæli til ömmu sinnar.

Föstudagur 4. apríl: Við vorum vakin eldsnemma eða 5:45 til að fara í flug til Vestmannaeyja. Þegar við komum á flugvöllinn var hinsvegar ófært þangað vegna þoku svo við tókum taxa á BSÍ og strætó þaðan í Landeyjarhöfn. Herjólfur sigldi svo með okkur til eyja. Sumir urðu svolítið sjóveikir en það jafnaði sig fljótt þegar við vorum komin í hendurnar á Óðni og Steinunni sem tóku á móti okkur á bryggjunni. Þau skutluðu okkur í skólann hans Jóntans Árna, Hamarskóla, þar sem var tekið afar vel á móti okkur. Við fengum leiðsögn um skólann og hittum fullt af skemmtilegu fólki eins og t.d. hana Önnu Lilju sundkennara sem kenndi okkur sund sl. vor. Jónatan bauð okkur svo í hádegismat heim til sín og þaðan fórum við að skoða bæði Sæheima og Safnheima. þar var sko margt að sjá og fræðast um. Leiðsögumennirnir okkar tóku svo vel á móti okkur að þær eiga hrós skilið. Tóti lundi var þó aðal númerið en hann er tæplega 2 ára gamall lundi sem fannst lítill og ræfilslegur og hefur átt heima í Sæheimum síðan. Við fórum aðeins á Stakkó sem er fallegur garður í hjarta Vestmannaeyja og svo í bakarí til að næra okkur örlítið og svo í góðan bíltúr um eyjuna þar sem heimamenn sögðu okkur margar sögur. Um kvöldið skelltum við okkur á 900 grillhús með fjölskyldunni á Áshamri og fengum ljúffenga máltíð.  Áður en við fórum heim tókum við einn rúnt upp á Stórhöfða en þar var töluverð þoka. Við enduðum daginn á að fara í pottinn með Jónatani en Ásta fékk að fara út í sjoppu með Brynjari Inga og öðrum unglingum Vestmannaeyja. 

Laugardagur 5. apríl: dagurinn hófst á morgunverði og svo skutumst við í sund. Í sundlauginni er frábært útisvæði þar sem eru t.d. klifurveggur, þreföld rennibraut og rennibraut með trampólíni í endann. Þaðan fórum við og fengum okkur hamborgara á veitingastað við sjávarsíðuna. Allir þurftu svo auðvitaða að fá að prófa að spranga. Það gekk vel hjá okkur og var mjög gaman. Jónatan Árni hélt svo upp á 9 ára afmælið sitt áður en við héldum í Herjólf. Áður en við fórum gáfum við þessari yndislegu fjölskyldu Steinunni, Óðni, Rúnari, Brynjari og Jónatani fallega gjöf, Íslenskar þjóðsögur, fyrir frábæra leiðsögn og móttökur. Takk fyrir okkur! Við tókum svo Herjólf í Landeyjarhöfn og svo strætó í borgina þar sem allir fóru til ættingja sinna.

Sunnudagur 6. apríl: Við hittumst við Gaflaraleikhúsið kl. 16:30 til að sjá leikritið Unglingurinn. Það var virkilega vel tekið á móti okkur og búið að taka frá sæti fyrir okkur á öðrum bekk fyrir miðju. Við hittum Björk Jakobsdóttur leikstjóra og hún spjallaði heilmikið við okkur og fannst mjög merkilegt að við værum heill skóli. Sjónvarpið var líka á staðnum því þetta var lokasýningin og það var verið að taka hana upp. Við þurftum því að æfa okkur að klappa þegar við fengum merki um það frá tæknimönnum og svoleiðis. Leikritið var alveg frábært og strákarnir sem leika og sömdu leikritið stóðu sig mjög vel. Allir fóru svo heim að leikriti loknu en þá var skólaferðalaginu formlega lokið. 

Þetta var frábær ferð Grin 

 Það eru myndir í albúmi!9.4.2014 143

Skólaferðalag

Við erum farin í skólaferðalag. Þið fáið ferðasöguna þegar við komum til baka Grin

24.2.14 002

 Gassi fær samt ekki að fara með!


Kári sigraði í Stóru upplestrarkeppninni á Reykhólum

27.mars.2014 031

Það er mikil ánægja að segja frá því að keppandinn okkar hann Kári sigraði í Stóru upplestrarkeppninni sem var haldin á Reykhólum í gær. Sex keppendur voru frá Hólmavík, Reykhólum, Drangsnesi og Árneshreppi.  Í öðru sæti varð Aron Viðar Kristjánsson frá Reykhólaskóla og í þriðja sæti Daníel Freyr Newton frá Grunnskólanum á Hólmavík. Hvatningarverðlaun fékk Brianna Jewel Johnson frá Grunnskólanum á Hólmavík. 

Keppendur lásu kafla úr bókinni Ertu Guð, afi? eftir Þorgrím Þráinsson, ljóð eftir skáldkonuna Guðfinnu Þorsteinsdóttur sem tók sér skáldanafnið Erla og svo fóru þau með eitt ljóð að eigin vali. Kári valdi að fara með ljóðið Undur eftir Vilborgu Dagbjartssdóttur.

Dómarar í keppninni voru þau Baldur Sigurðsson frá Röddum, Guðjón Dalkvist á Reykhólum og sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir sóknarprestur á Reykhólum.

Þær Karen Ösp Haraldsdóttir frá Grunnskólanum á Drangsnesi, sigurvegari frá í fyrra, og Aðalbjörg Egilsdóttir frá Reykhólaskóla, sem varð þá í öðru sæti, voru krökkunum til aðstoðar og kynntu höfunda keppninnar. 

Skemmtiatriðin voru í boði nemenda Reyhólaskóla sem sýndu auglýsingamyndband um vörur tengdar Reykhólum og svo flutti Sólrún Ósk Pálsdóttir lagið  You can read all about it í eigin útsetningu. 

Þetta var frábær keppni og óskum við Reykhólaskóla til hamingju með glæsilega hátíð og auðvitað keppendum öllum fyrir framúrskarandi árangur!

27.mars.2014 03527.mars.2014 040

Skóladýrið Jenni

Við krakkarnir í Finnbogastaðaskóla erum með hamstur af því að eigandinn hún Alma  er í Reykjavík.

Hér sjáið þið myndir af honum.

kv. Þórey 

20.03.2014 001

 Sjáið þetta krútt!

20.03.2014 002

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband