Færsluflokkur: Bloggar

Öskudagur :)

Á öskudag gerðist aldeilis mikið hér í Árneshreppi. Krakkarnir fóru að syngja fyrir nammi á bæjunum í víkinni. Svo hittust allir úti í félagsheimilli. Þar var eintómt hopp og hí. Það var ball og kötturinn sleginn úr tunnunni sem var flottur kassi sem við krakkarnir gerðum. Búningar voru í öllum stærðum og gerðum. Kanínur, prinsar, prinessur, indánar ,ninjur og fleira.Gaman að sjá svona marga.

 

myndir í albúminu

 

höf:Alma Sóley 


Gassi gæðagæs

Jæja, hann Gassi okkar ákvað að koma aftur til okkar í skólann eftir að hafa verið sármóðgaður út í okkur í tæpa viku. Auðvitað tókum við honum með opnum örmum og kysstum hann og knúsuðum. Þegar að við vorum búin að kyssa hann og knúsa þá ákvað hann hvað hann vildi gera í framtíðinni. Hann vildi vera fyrirsæta. Við fengum að taka nokkrar myndir af honum.24.2.14 00224.2.14 00724.2.14 010 

Gestir hjá okkur

 Þessa vikuna erum við svo heppin að hafa systkynini þau Skúla Björn og Brynju Dröfn hjá okkur í heimsókn. Þau eru í vetrarheimsókn hjá ömmu sinni og afa á Melum. Á myndina vantar Ölmu en hún var rétt ókomin úr borginni!106

Alma afmælisstelpa

Til hamingju með 9 ára afmælið þitt elsku Alma Sóley! Hafðu það súpergott í dag Wizard

05.02.2014 101

 


Við erum að læra um himingeiminn

Þessa dagana erum við að læra um sólkerfið okkar en í því eru sólin, 8 reikistjörnur og mörg tungl. Í þessari viku erum við að læra um Satúrnus. hann er svo fallegur af því að í kring um hann eru fallegir hringir sem eru úr ískristöllum.

Nokkrar staðreyndir um Satúrnus:

 

  • hann getur flotið
  • Um hann liggja mislit ský
  • hann er fullur af vetni, helíum og metan
  • hann er næst stærsta reikistjarnan 
  • þar er nýstingskalt eða um -150°c á pólunum
Já það er sko margt undurfallegt í geimnum hér er mynd af okkur að teikna Satúrnus í vinnubækurnar okkar!
 
Aníta, Alma og Þórey 
05.02.2014 100

05.02.2014 10405.02.2014 102

 


Músin sem flaug á skottinu

Í dag lásum við bókin Músin sem flaug á skottinu eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Bókin er um einmana mús sem dreymir draum og kynnist þá draumamúsinni og fuglinum. Fuglinn syngur fyrir músina og músin segir honum frá draumum sínum og því hvað hún er einmana. Fuglinn heldur að það sé betra að hún skipti einmanaleikanum í tvennt og láti sig hafa helminginn því þá er maður helmingi minna einmana. 

Aníta: Mér fannst bókin skemmtileg, aðallega endirinn.

Alma: mér fannst bókin skemmtileg og lærdómsrík. 

Við mælum með bókinni því allir þurfa vini hvort sem maður er mús eða maður

3.2.2014 109

 


Bleiki dagurinn

Á bóndadag gerðist ekki lítið í Finnbogastaðaskóla. Það voru fjórar stelpur og allar í bleiku. Allar fjórar gerðu bóndadagskort og höfðu  gaman.

 

 Höf:Alma Sóley

30.01.2014 001

 

30.01.2014 002

Mandarínutré

20 janúar 2014

Stelpurnar þrjár Alma, Aníta og Þórey gróðursettu mandarínufræ út í frímínútum  og vökvuðu

og ætla að halda því áfram það verður gaman að sjá hvort það virkar?

 

höf: Alma Sóley 


Ljóð um haustið

Haust er gott

það er flott.

Við leikum úti

í rólunni.

Höfundur:Aníta Mjöll 2. bekkur


Fallegur morgunn í Finnbogastaðaskóla

Kálfatindar 

09.01.2014 005

 

 

 

 

 

 

 

Árnestindur

 09.01.2014 004

 

 

 

 

 

 

 Reykjarneshyrna

09.01.2014 006 

 

 

 

 

 

 

 Árnesdalur

  09.01.2014 007


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband