Glæsileg gjöf

Mikill fengur barst sveitarfélaginu og ekki síst Finnbogastaðaskóla í dag þegar Kristján Andri Guðjónsson sjómaður  kom færandi hendi með nýtt hljóðkerfi sem sett verður upp í félagsheimilinu í Trékyllisvík. Mikil þörf var á slíku kerfi en það mun nýtast við ýmis tækifæri s.s. þegar nemendur halda skemmtanir í félagsheimilinu, við veisluhöld, fundi eða aðra viðburði. Við þökkum Kristjáni Andra kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf og óskum honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. 

Hér má sjá Oddnýju S. Þórðardóttur oddvita og Elísu Ösp Valgeirsdóttur skólastjóra taka við gjöfinni

 

20.12.2013 026

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband