Færsluflokkur: Bloggar

Spennusagan ,,Þokan mikla og draugarnir fimm"

Einu sinni var strákur að smala kindum á efsta tindi á fjalli. Þá kom svakaleg þoka og fimm draugar út úr þokunni. Strákurinn hljóp og hljóp en draugarnir flugu svo hratt að þeir slógu næstum met úúúúúúúúúúú og náðu stráknum. Draugarnir hétu Alli, Palli, Erlingur, Máni og Kári. Draugarnir héldu heim á leið með strákinn og það veit enginn meir.

Kári


Heimsókn til Sviss á netinu

Ég var að skoða síðu úr einum skóla í Sviss. Roland er kennari krakkanna og hann var svo góður að senda okkur tengingu á síðuna þeirra. Endilega kíkið á hana http://5a6a.tumblr.com

Kveðja Júlíana Lind Wink


Vinaböndin

Ég, Kári og Júlla vorum að gera vinabönd. Ég gerði band sem ég veit ekki hvað heitir en Júlla gerði tíglaband og Kári gerði snúning. Þetta var æðislegt vonandi getum við gert þetta aftur. Hér getið þið séð mynd af mér með vinabandið vafið upp á tána. 

Ásta Þorbjörg

12.nóv´09 001

Skemmtileg heimsókn

5 nóvember 001Það er alltaf gaman að fá gesti í skólann og gestirnir að þessu sinni voru þau Ástrós Lilja og bróðir hennar Heimir. Þau voru hjá okkur í tvo daga og var það mjög gaman að hafa þau. Þau voru í sveitinni frá fimmtudegi til þriðjudags . Þau áttu að fara  í flugi en við krakkarnir vorum svo heppin að það var ekki flogið svo að við fengum að hafa þau degi lengur.Júlíana Lind  

Þakkir til félags Árneshreppsbúa

Finnbogastaðaskóli  var styrktur af félagi Árneshreppsbúa til að kaupa tölvu  sem hefur gagnast okkur krökkunum vel.  Við sendum kærar kveðjur til þeirra og bestu þakkir.Kveðja Júlíana Lind, Ásta Þorbjörg og Kári 5 nóvember 005 

Goðin

002

Undanfarnar vikur höfum við verið að læra um goðin og æsina í Ásgarði. Við vorum að læra um bræðurna Óðinn, Vilja og Vé. Einnig vorum við að læra um þrumuguðinn Þór, Múspellsheim, skapanornirnar Urði, Verðandi og Skuld og fleiri skemmtilegar persónur. Við bjuggum til heiminn þ.e. hvernig hann leit út þegar hann var skapaður. Hérna sjáið þið svo mynd af okkur þegar heimurinn okkar var tilbúinn.

 

Kári

 

Föndurdagurinn mikli

Um daginn kom Aníta úr Bæ í heimsókn í skólann. Við vorum í stærðfræði þegar hún kom inn. Svo voru frímínútur og við fórum upp að kubba þangað til að föndurtíminn byrjaði. Þegar hann var byrjaður völdu allir að mála myndir, það var gaman að sjá hvað Aníta var snjöll að mála myndir. Við hlökkum til að fá hana aftur í heimsókn í skólann.

Skólaferðalag 2009 Flatey 111

Ásta Þorbjörg


Félagsvist í kvöld

Við viljum minna ykkur á félagsvistina í kvöld í samkomuhúsinu klukkan 20:30. Mætum glöð og kát sjáumst þá.

Ásta Þorbjörg, Kári og Júlíana Lind


Skólaferðalag til Flateyjar

 

Fullt af myndum í myndaalbúminu

 Skólaferðalag 2009 Flatey 026

 

Mánudagur 28/9 2009.

Við fórum til Hólmavíkur og þar fórum við á Kaffi Galdur. Þar fengum við galdraseyði og súkkulaðiköku. Síðan fórum við nýja veginn um Arnkötludal. Svo keyrðum við alla leið á Brjánslæk og sigldum með Baldri til Flateyjar. Húsið sem við gistum í heitir Vesturbúðir. Um kvöldið héldum við kvöldvöku

Kári

Þriðjudagur 29/9 2009

Ég vaknaði og mér var ískalt. Þegar allir voru vaknaðir og búnir að borða morgunmat fórum við í göngutúr og skoðuðum kirkjuna og bókasafnið. Og bókasafnið í Flatey var fyrsta bókasafnið á Íslandi. Svo fórum við í hið kyngimagnaða draugaskip sem er risastórt og mjög gamalt. Þegar við vorum búin að grandskoða skipið fórum við í hádegismat. Eftir hádegismat fórum við í gönguferð um þorpið og svo aftur í Vesturbúðir þar sem við gistum og héldum aðra kvöldvöku.

Tuesday 29th of september

I woke up and I was freezing it was so cold. When eweryone was a wake and done with the brekfast we whent out. We looked at the church and the libary. We also saw a ghostship and it was huges. We whent back to the house we were staying in and had a supe for lunch. After lunch we looked at the village . Then we whent to the house and had an entertain it was so fun and after that we whent to sleep.

Júlíana Lind

Miðvikudagur 30/9 2009.

Í morgun fórum við hringinn í kringum Flatey. Svo fórum við aftur í draugaskipið og fórum í sjóræningjaleik og svo fórum við heim í Vesturbúðir og fengum gómsæta súpu og súrmjólk. Ég gleymdi brauðinu. Svo fórum við í bátinn Baldur en ekki guðinn Baldur.

Ásta Þorbjörg


Flöskur

Eins og vanalega á hverju ári teljum við flöskur sem koma beint af tjaldstæðinu og frá íbúum í sveitinni. Ágóðinn fer beint í ferðasjóðinn okkar. Undanfarna daga höfum við flokkað og talið fleiri hundruð flöskur og dósir.Okkur finnst öllum gaman að flokka dósir en það getur líka verið svolítið ruglandi að vera komin upp í 400 og gleyma síðan tölunni. 24.sept.2009 003

Júlíana Lind

Ásta Þorbjörg

Kári


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband